Skeggburkni
Skeggburkni | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
![]() Skeggburkni í klettasprungu í Þýskalandi.
| ||||||||||||||
Ástand stofns | ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Asplenium septentrionale (L.) Hoffm. |
Skeggburkni (fræðiheiti: Asplenium septentrionale) er tegund burkna af klettaburknaætt. Skeggburkni vex á þurrum, sólríkum stöðum, til dæmis í klettasprungum.[1] Aðeins þrír skeggburknar eru þekktir á Íslandi, allir í Höfðahverfi í Eyjafirði og er hann því stundum nefndur sjaldgæfasta tegund íslensku flórunnar. Tveir þessara skeggburkna hafa vaxið þar síðan árið 1960 en nýr einstaklingur fannst þar árið 2014.[2] Önnur náttúruleg heimkynni skeggburkna eru í Norður-Ameríku, Evrópu og Asíu.[3]
Skeggburkni er friðlýstur á Íslandi í verndarflokki tegunda í bráðri hættu (CR).[4]
Tilvísanir[breyta | breyta frumkóða]
- ↑ Flóra Íslands. Skeggburkni - Asplenium septentrionale. Sótt 24. maí 2017.
- ↑ RÚV, 20. ágúst 2014. Þrjár plöntutegundir finnast ekki. Sótt 24. maí 2017.
- ↑ Lystigarður Akureyrar. Asplenium septentrionale. Geymt 27 september 2020 í Wayback Machine Sótt 24. maí 2017.
- ↑ Náttúrufræðistofnun Íslands. Skeggburkni - Asplenium septentrionale. Geymt 19 júlí 2017 í Wayback Machine Sótt 24. maí 2017.
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Skeggburkni.
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/d/df/Wikispecies-logo.svg/34px-Wikispecies-logo.svg.png)
Wikilífverur eru með efni sem tengist Asplenium septentrionale.