Fara í innihald

Rafíþróttasamtök Íslands

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Rafíþróttasamband Íslands
Rekstrarform Félagasamtök
Stofnað 2018
Stofnandi Ólafur Hrafn Steinarsson
Staðsetning Reykjavík
Lykilpersónur Jökull Jóhannson
Starfsemi Rafíþróttir
Vefsíða Rafíþróttasamband Íslands

Rafíþróttasamband Íslands eru félagasamtök staðsett á Íslandi, stofnuð árið 2018.

Rafíþróttasamband Íslands (RÍSÍ) eru samtök stofnuð til þess að vekja athygli á og styðja þróun rafíþrótta á Íslandi.

Markmið sambandsins er að kynna rafíþróttir sem gilt áhugamál sem elur með sér jákvæða ávinninga fyrir iðkendur svo sem samvinnu, samskiptahæfni, viðbragðsflýti, vandamálalausn og hvers konar líkamlega þjálfun er stefnir að því að auka líkamlegt og andlegt atgervi, heilbrigði og hreysti ásamt fleiri ávinningum þegar þær eru stundaðar markvisst.

Rafíþróttasambandið leitast einnig eftir því að styðja við grasrótarstarf á sviði rafíþrótta á Íslandi og samstarfi við stjórnvöld, foreldra og kennara þegar kemur að málefnum rafíþrótta á Íslandi.

Rafíþróttasambandið vill skapa störf innanlands á sviði rafíþrótta sem og byggja upp þekkingu sem getur nýst íslenskum áhugamönnum um rafíþróttir í því að byggja feril innan iðnaðarins erlendis.

Þetta einskorðast ekki við atvinnuspilamennsku heldur felur í sér störf á sviði þjálfunar, greiningar, viðburðarstjórnun og fleiri.

Rafíþróttasambandið styður við framtök um land allt og eru öllum opin. [1]

Þann 23. maí 2024 var Jökull Jóhannsson ráðinn sem framkvæmdastjóri Rafíþróttasamtaka Íslands. [2]









Tilvísanir[breyta | breyta frumkóða]