Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Ertu með? Bakhlið
Flytjandi Hljómar Gefin út 1965 Stefna Dægurlög Útgefandi SG - hljómplötur
Hljómar er 45 snúninga hljómplata gefin út af SG - hljómplötum árið 1965.
Á henni flytja Hljómar fjögur lög.
Ertu með?
Kvöld við Keflavík
Ef hún er nálægt mér
Minningin um þig
Ertu með út á ball,
ertu með mér á rall?
Ertu með upp í dans
ertu með mér á sjans?
Eins og smér er ég hér ef út af ber.
Ástin óð er hjá mér en hjá þér.
Ertu með upp í skóg?
Ég ætla að kveða í ró
ástar ljóð þar til þín.
Þú ert rjóð, þú ert fín.
Þú ert góð, þú ert mín, þú er hljóð.
Við ástaróð í augum skín, ástar glóð.
Unaðslegir ástar fundir
okkur fylgja allar stundir
Ertu með upp í skóg?
Ég ætla að kveða í ró
ástarljóð þar til þín.
Þú ert rjóð, þú ert fín.
Þú ert góð, þú ert mín, þú er hljóð.
Við ástaróð í augum skín, ástarglóð.
Fyrsta plata Hljóma, sem kom út fyrir nokkrum vikum hefur hlotið miklar vinsœldir, enda söngur og leikur Hljóma mjög góður, einnig standa lög Gunnar Þórðarson ekkert að baki erlendum lögum í þessum stíl.