Gvendarlaug í Bjarnarfirði
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/b/ba/Potturinn.jpeg/220px-Potturinn.jpeg)
Gvendarlaug í Bjarnarfirði á Ströndum er lítil hlaðin baðlaug (Hver) um 100 metrum norðan við vesturhorn Hótel Laugarhóls í gamla skólahúsinu á Klúku. Laugin er friðlýst sem fornleifar og er ein margra Gvendarlauga á Íslandi, þar sem sagt er að Guðmundur góði Arason biskup á Hólum (-1237) hafi vígt vatnið.
Lítið eitt neðan við baðlaugina, á milli Hótels Laugarhól og Kotbýlis kuklarans sem er hluti af Galdrasýningu á Ströndum, er sundlaug sem einnig er kölluð Gvendarlaug, eftir gömlu lauginni.
Tengt efni[breyta | breyta frumkóða]
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/c/ce/Flag_of_Iceland.svg/40px-Flag_of_Iceland.svg.png)