Erieskurður
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/d/d0/Sunset_over_the_Erie_Canal_in_North_Tonawanda%2C_NY..jpg/220px-Sunset_over_the_Erie_Canal_in_North_Tonawanda%2C_NY..jpg)
Erieskurður er skipaskurður í New York fylki. Skurðurinn er vatnaleið frá New York City við Atlantshafið að Vötnunum miklu. Skurðurinn var upprunalega 584 km og liggur frá Hudsonfljóti við Albany að Buffalo við Erie-vatn. Lokið var við skurðinn árið 1825 og var hann þá annar stærsti skipaskurður í heimi. Erieskurðurinn hafði mikil áhrif á uppgang og velmegun í New York City og Bandaríkjunum.
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Erieskurður.