Fara í innihald

Þorsteinn Eggertsson

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Þorsteinn Eggertsson (f. 25. febrúar 1942) er myndlistarmaður, söngvari og textahöfundur. Hann var um tíma söngvari hjá KK-sextett, söng með Hljómsveit Guðmundar Ingólfssonar í Keflavík og fleiri hljómsveitum. Hann fór í myndlistanám í Kaupmannahöfn og varð 1963 fréttaritari Alþýðublaðsins í Kaupmannahöfn. Þegar hann sneri heim frá námi 1965 gerðist hann blaðamaður við tvö táningatímarit og fór að semja dægurlagatexta fyrir hljómplötur að áeggjan Þóris Baldurssonar sem þá var í Savanna-tríóinu. Eftir Þorstein liggur mikið magn dægurlagatexta en rúmlega fjögur hundruð þeirra hafa verið gefnir út á hljómplötum og geisladiskum. Langsamlega frægasti textinn eftir hann er „Gvendur á eyrinni“, en af öðrum má nefna „Heim í Búðardal“ og „Síðasta sjóferðin“.

Heimild[breyta | breyta frumkóða]

Tenglar[breyta | breyta frumkóða]