Ágústudalur
(Endurbeint frá Valle d'Aosta)
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/b/be/Valle_d%27Aosta-Bandiera.png/220px-Valle_d%27Aosta-Bandiera.png)
Ágústudalur (ítalska Valle d'Aosta, arpitanska Vâl d’Aoûta, franska Vallée d'Aoste) er sjálfstjórnarhérað í norðvesturhluta Ítalíu með landamæri að Frakklandi (Haute Savoie, Savoie og Rhône-Alpes), Sviss (Vallese) í vestri og norðri og Fjallalandi í austri. Höfuðstaður héraðsins er Ágústa. Íbúar héraðsins eru um 120 þúsund íbúar í 74 sveitarfélögum, en Ágústudalur er aðeins ein sýsla. Sumir íbúar héraðsins tala franskar mállýskur.
Ágústudalur liggur inn á milli Alpafjalla og telur meðal annars hlíðar fjallanna Mont Blanc og Matterhorn. Hæsta fjallið er Gran Paradiso.
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/0/07/Aosta_Valley_in_Italy.svg/220px-Aosta_Valley_in_Italy.svg.png)