Klettafjöll
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/0/0e/RockyMountains-Range.svg/220px-RockyMountains-Range.svg.png)
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/9/9f/Mount_Elbert_June_2006.jpg/220px-Mount_Elbert_June_2006.jpg)
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/7/75/Mt_Robson_South_Face.jpg/220px-Mt_Robson_South_Face.jpg)
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/f/f0/Willow_Flats_area_and_Teton_Range_in_Grand_Teton_National_Park.jpg/220px-Willow_Flats_area_and_Teton_Range_in_Grand_Teton_National_Park.jpg)
Klettafjöllin eru um 4800 km langur fjallgarður. Þau liggja frá Bresku Kólumbíu í Kanada í norðri til Nýju Mexíkó í Bandaríkjunum í suðri. Hæsti tindur þeirra er Mount Elbert í Colorado sem nær 4401 m.h.y.s. Hæsti tindur Kanadaklettafjalla er Mount Robson í Bresku Kólumbíu, 3954 m.
Gróður[breyta | breyta frumkóða]
Meðal barrtrjáa sem þar vaxa eru hvítgreni, blágreni, broddgreni, fjallaþinur, degli, fjallaþöll og stafafura. Lauftré eru m.a. balsamösp, nöturösp, elri og víðitegundir.
Dýralíf[breyta | breyta frumkóða]
Allmörg spendýr lifa í eða við fjöllin: Grábirnir, svartbirnir, úlfar, múrmeldýr, íkornar, múshéra, stórhyrninga, klettafjallageitur, elgir og hjartardýr. Af fuglum má nefna skallaerni, rjúpur, himbrima, marga spörfugla og endur.
Þjóðgarðar[breyta | breyta frumkóða]
Kanadamegin eru m.a. þjóðgarðarnir Jasper, Banff, Yoho-þjóðgarðurinn, Waterton Lakes-þjóðgarðurinn og Kootenay-þjóðgarðurinn. Í Bandaríkjunum eru m.a. Yellowstone, Rocky Mountain National Park, Glacier National Park og Grand Teton-þjóðgarðurinn. Þar er takmörkuð bygging mannvirkja.
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)