Munn- og kjálkaskurðlækningar
(Endurbeint frá Oral and maxillofacial surgery)
Heimildir skortir fyrir staðhæfingum í þessari grein. Ef þú vilt bæta við heimild vinsamlegast bættu þeim við undir nýrri fyrirsögn („Heimildir“) eða skildu eftir athugasemd á spjallsíðunni. |
Munn- og kjálkaskurðlækningar eru sú sérgrein innan tannlæknisfræðinnar sem fæst við greiningu og meðferð sjúkdóma, áverka og meina í mjúkum og hörðum vefjum munnhols, kjálkabeina og andlits.
Munn- og kjálkaskurðlæknar eru tannlæknar sem hafa lokið a.m.k. fjögurra ára löngu sérnámi við sjúkrahúsdeild í sérgreininni. Ekki er hægt að læra munn- og kjálkaskurðlækningar á Íslandi og því hafa allir íslenskir munn- og kjálkaskurðlæknar sótt sérnám erlendis.
Helstu viðfangsefni sérgreinarinnar eru djúplægir endajaxlar, tannplantar, kjálka- og andlitsbrot, alvarlegar tannsýkingar, kjálkafærslur, æxli og aðrar meinsemdir í kjálkum og fl.
Langflestar aðgerðir eru framkvæmdar í staðdeyfingu en við ákveðnar aðstæður þarf að grípa til svæfingar.