2024
(Endurbeint frá Júní 2024)
Árþúsund: | 3. árþúsundið |
---|---|
Aldir: | |
Áratugir: | |
Ár: |
Árið 2024 (MMXXIV í rómverskum tölum) er í gregoríanska tímatalinu hlaupár sem byrjar á mánudegi.
Atburðir[breyta | breyta frumkóða]
Janúar[breyta | breyta frumkóða]
- 1. janúar:
- Egyptaland, Eþíópía, Íran, Sádi-Arabía og Sameinuðu arabísku furstadæmin gerðust aðilar að BRICS.
- Fylkið Vestfold og Þelamörk í suður-Noregi var lagt niður og skiptist í Vestfold og Þelamörk eins og fyrir 2020.
- Artsak-lýðveldið var leyst upp og landsvæði þess að fullu limað inn í Aserbaísjan.
- Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, ákvað að bjóða sig ekki fram í komandi forsetakosningum.
- Landgræðslan og Skógræktin sameinuðust í stofnunina Land og skógur.
- 2. janúar - Ísraelsher réð næstráðanda Hamas-samtakana, Saleh Al-Arouri, af dögum í drónaárás í Beirút, Líbanon.
- 3. janúar - 84 létust í sprengjuárás í Íran við minningarathöfn helgaðri hershöfðingjanum Qasem Soleimani. Íslamska ríkið lýsti yfir ábyrgð.
- 5. janúar - Lægsta hitastigið á Norðurlöndum í 25 ár mældist í norður-Svíþjóð þegar hitinn fór niður fyrir -44 C°.
- 9. janúar - Gabriel Attal var útnefndur forsætisráðherra Frakklands. Hann tók við af Élisabeth Borne sem sagði af sér. Attal varð yngsti forsætisráðherra í sögu landsins og fyrsti samkynhneigði maðurinn til að gegna embættinu.
- 10. janúar – 28. janúar: Evrópumótið í handbolta karla hófst í Þýskalandi.
- 11. janúar - Jökulhlaup varð í Grímsvötnum.
- 12. janúar - Bandaríkin og Bretland gerðu loftárásir á Jemen vegna árása Hútí-fylkingarinnar á vöruflutningaskip á Rauðahafi.
- 13. janúar - Lai Ching-te var kosinn forseti Taívans.
- 14. janúar –
- Eldgos hófst að nýju við Sundhnúksgíga/Hagafell. Önnur sprunga opnaðist nær Grindavík og eyðilagði hraun nokkur hús.
- Margrét Þórhildur Danadrottning afsalaði sér krúnunni og Friðrik Danakrónprins varð konungur Danmerkur.
- 16. janúar –
- Einar Þorsteinsson varð borgarstjóri Reykjavíkur. Dagur B. Eggertsson lét af störfum.
- Engin gosvirkni sást í gosinu í námunda við Grindavík.
- 19. janúar: Fyrsta geimfar Japans lenti á tunglinu.
- 26. janúar - Fyrsta aftakan fór fram í Bandaríkjunum þar sem niturgas var notað.
Febrúar[breyta | breyta frumkóða]
- 3. febrúar: Bandaríkin gerðu árásir á 85 skotmörk í Sýrlandi og Írak eftir að sveitir hliðhollar Íran gerðu árás á bandaríska herstöð í Jórdaníu.
- 4. febrúar: Nayib Bukele var endurkjörinn forseti El Salvador.
- 6. febrúar: Skógareldar í Chile; yfir 100 létust.
- 8. febrúar: Eldgos hófst við Sundhnúk á svipuðum stað og í desember árið áður. Hraun fór yfir hitaveitulögn og urðu Suðurnes heitavatnslaus. Gosinu lauk eftir sólarhring.
- 10. febrúar: Katarska karlalandsliðið í knattspyrnu vann Asíukeppni karla í knattspyrnu þegar liðið sigraði Jórdaníu í úrslitum.
- 11. febrúar:
- Karlalandslið Fílabeinsstrandarinnar í knattspyrnu vann Afríkukeppnina þegar liðið lagði Nígeríu 2:1 í úrslitum.
- Alexander Stubb var kjörinn forseti Finnlands.
- 12. febrúar: Heitt vatn komst á á Suðurnesjum eftir að ný heitavatnslögn var lögð eftir að hraun skemmdi fyrri lögn.
- 16. febrúar: Aleksej Navalnyj, rússneskur stjórnmálamaður og andstæðingur Vladímír Pútín lést í fangelsi.
- 29. febrúar: Ísraelsher gerði árás á fólk í Gasa sem hópaðist að bílum sem dreifðu matvælum.
Mars[breyta | breyta frumkóða]
- 2. mars: Hera Björk Þórhallsdóttir vann Söngvakeppnina 2024 með lagið Scared of Heights.
- 3. mars: Stjórnvöld á Haítí lýstu yfir neyðarástandi eftir að gengi náð yfirráðum yfir svæðum í höfuðborginni. Þau kröfðust uppsagnar forsætisráðherrans Ariel Henry.
- 7. mars: Svíþjóð gekk formlega í NATÓ.
- 16. mars: Eldgos hófst á milli Hagafells og Stóra Skógfells, norðan Grindavíkur.
- 15.-17. mars: Forsetakosningar voru haldnar í Rússlandi. Vladimír Pútín hlaut 87% atkvæða í kosningunum sem voru taldar ólýðræðislegar af vestrænum leiðtogum.
- 20. mars: Leo Varadkar tilkynnti afsögn sína sem forsætisráðherra Írlands.
- 22. mars: Hryðjuverkaárás var gerð á tónleikahöll nálægt Moskvu. Nálægt 140 létust. Íslamska ríkið í Khorasan lýsti yfir ábyrgð. Rússar bendluðu Úkraínu við árásina.
- 26. mars: Gámaskip sem varð rafmagnslaust sigldi á Francis Scott Key-brúna í Baltimore í Bandaríkjunum með þeim afleiðingum að brúin hrundi og sex létust.
- 28. mars: Ísrael gerði árásir á Líbanon og Sýrland. Þeir beindust gegn Hezbollah-samtökunum.
- 31. mars: Búlgaría og Rúmenía urðu aðilar að Schengen-samstarfið í gegnum flug- og siglingaleiðir.
Apríl[breyta | breyta frumkóða]
- 1. apríl: Þýskaland lögleiddi einkaneyslu á 25 grömmum á kannabis.
- 3. apríl: Stærsti jarðskjálfti í 25 ár varð í Taívan, 7,4 að stærð.
- 5. apríl- 7. apríl: Katrín Jakobsdóttir gaf kost á sér í komandi forsetakosningunum. Hún baðst lausnar sem forsætisráðherra Íslands og gekk á fund forsetans 7. apríl.
- 6. apríl: Íbúar í Kristjaníu í Kaupmannahöfn hófu að rífa upp götuna í táknrænum tilgangi og í mótmælum gegn fíkniefnagengjum.
- 9. apríl: Simon Harris varð forsætisráðherra Írlands.
- 10. apríl: Annað ráðuneyti Bjarna Benediktssonar tók við völdum.
- 13. apríl: Íran gerði drónaárás á Ísrael.
- 16. apríl: Bruni varð í gömlu kauphöllinni, Børsen, einni elstu byggingu Kaupmannahafnar.
- 19. apríl: Íran skaut niður þrjá ísraelska dróna yfir borginni Isfahan í miðhluta landsins.
- 20. apríl: Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti áframhaldandi fjárhagsstuðning við Úkraínu vegna innrásar Rússlands.
- 25. apríl: Bráðabirgðastjórn tók við völdum á Haítí eftir afsögn Ariel Henry, forseta og forsætisráðherra.
- 29. apríl: Humza Yousaf sagði af sér sem fyrsti ráðherra Skotlands og formaður Skoska þjóðarflokksins.
Maí[breyta | breyta frumkóða]
- 3. maí - Tyrkland setti viðskiptabann á Ísrael vegna ástandsins á Gasa.
- 4. maí - Sadiq Khan var endurkjörinn borgarstjóri London í þriðja skipti.
- 7. maí - Guðrún Karls Helgudóttir, var kosin biskup Íslands.
- 7. maí - 11. maí: Eurovision var haldið í Malmö, Svíþjóð. Svissneski rapparinn Nemo vann keppnina með laginu „The Code“.
- 15. maí - Skotárás var gerð á Robert Fico, forsætisráðherra Slóvakíu, sem særðist lífshættulega.
- 19. maí - Forseti Írans, Ebrahim Raisi fórst í þyrluslysi ásamt utanríkisráðherra landsins, héraðsstjóra Austur-Aserbaísjan og fleirum.
- 20. maí - Lai Ching-te tók við embætti forseta Taívans.
- 24. maí - Yfir 2.000 létust í skriðuhlaupi í Papúa Nýju-Gíneu.
- 26. maí - Gitanas Nausėda var endurkjörinn forseti Litáens.
- 28. maí - Ísraelsher réðst inn í miðborg Rafah í suður-Gasa.
- 29. maí: Eldgos hófst að nýju við Sundhnúksgíga.
Júní[breyta | breyta frumkóða]
- 1. júní - Forsetakosningar fóru fram á Íslandi. Halla Tómasdóttir var kjörin 7. forseti Íslands.
- 2. júní - Claudia Sheinbaum var kosin fyrsti kvenforseti Mexíkó.
- 6. júní - 9. júní: Kosningar til Evrópuþingsins verða haldnar.
- 8. júní - 22. júní: Kosið verður um sameiningu Skagabyggðar og Húnabyggðar.
- 14. júní - 14. júlí: Evrópukeppnin í knattspyrnu og Copa América verða haldnar á sama tíma.
- Tálknafjarðarhreppur sameinast Vesturbyggð.
Júlí[breyta | breyta frumkóða]
- 4. júlí - Þingkosningar verða haldnar í Bretlandi.
- 26. júlí - 11. ágúst: Sumarólympíuleikarnir fara fram í París.
- 31. júlí - Guðni Th. Jóhannesson lætur af embætti forseta Íslands.
Ágúst[breyta | breyta frumkóða]
- 1. ágúst: Halla Tómasdóttir tekur við embætti forseta Íslands.
- 17. ágúst: Nusantara verður ný höfuðborg Indónesíu og tekur við af Jakarta.
September[breyta | breyta frumkóða]
- 1. september: Nýr biskup Íslands verður vígður.
Október[breyta | breyta frumkóða]
Nóvember[breyta | breyta frumkóða]
- 5. nóvember: Forsetakosningar verða haldnar í Bandaríkjunum.
Desember[breyta | breyta frumkóða]
Dáin[breyta | breyta frumkóða]
- 2. janúar - Auður Haralds, rithöfundur (f. 1947).
- 4. janúar - Glynis Johns, bresk leikkona (f. 1923).
- 7. janúar - Franz Beckenbauer, þýskur knattspyrnumaður og þjálfari (f. 1945).
- 9. janúar - Guðrún Jónsdóttir, borgarfulltrúi og baráttukona fyrir kvenréttindum (f. 1931).
- 4. febrúar - Hage Geingob, forseti Namibíu (f. 1941).
- 6. febrúar - Sebastián Piñera, forseti Chile (f. 1949).
- 12. febrúar - Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands frá 1998 til 2012 (f. 1947).
- 16. febrúar - Aleksej Navalnyj, rússneskur stjórnmálamaður og andstæðingur Vladímír Pútín (f. 1976).
- 20. febrúar - Andreas Brehme, þýskur knattspyrnumaður (f. 1960).
- 29. febrúar - Brian Mulroney, kanadískur stjórnmálamaður (f. 1939).
- 6. mars - Björgvin Gíslason, tónlistarmaður (f. 1951).
- 10. mars - Páll Bergþórsson, veðurstofustjóri (f. 1923).
- 11. mars - Matthías Johannessen, ljóðskáld, rithöfundur og ritstjóri Morgunblaðsins (f. 1930).
- 26. mars - Richard Serra, bandarískur myndlistamaður (f. 1939)
- 27. mars - Daniel Kahneman, ísraelsk-bandarískur sálfræðingur og höfundur. (f. 1934)
- 11. apríl - O.J. Simpson, bandarískur ruðningskappi og leikari (f. 1947).
- 19. apríl - Daniel Dennett, bandarískur heimsspekingur og trúleysingi (f. 1942).
- 25. apríl - Pétur Einarsson, leikari (f. 1940)
- 13. maí - Alice Munro, kanadískur rithöfundur (f. 1931)
- 19. maí - Ebrahim Raisi, forseti Írans (f. 1960)
- 3. júní - Brigitte Bierlein, kanslari Austurríkis (f. 1949)
- 7. júní - Bill Anders, bandarískur geimfari (f. 1933)