Forsetakosningar á Íslandi
(Endurbeint frá Hinar íslensku forsetakosningar)
Forsetakjör á Íslandi fer alla jafna fram á fjögurra ára fresti. Kosningarétt hafa allir íslenskir ríkisborgarar yfir 18 ára aldri sem eiga lögheimili á Íslandi. Íslenskir ríkisborgarar sem búsettir eru erlendis halda kosningarétti sínum í 16 ár frá brottflutningi lögheimils frá Íslandi en að þeim tíma liðnum geta þeir sótt um að vera á kjörskrá en sú skráning gildir til fjögurra ára í senn.
Forsetakjör hefur farið fram í 22 skipti en í 11 skipti hefur sitjandi forseti ekki fengið mótframboð og því verið sjálfkjörinn án atkvæðagreiðslu. Í fjögur skipti hefur sitjandi forseti fengið mótframboð en ávallt borið sigur úr býtum.
Listi yfir forsetakjör[breyta | breyta frumkóða]
- Forsetakosningar á Íslandi 1944 - Sveinn Björnsson var kosinn af Alþingi á Þingvöllum þann 17. júní 1944.
- 1945 - Sjálfkjörinn (Ef Sveinn hefði fengið mótframboð hefðu þetta verið fyrstu almennu forsetakosningarnar á Íslandi)
- 1949 - Sjálfkjörinn
- Forsetakosningar á Íslandi 1952 - Nýr forseti kosinn Ásgeir Ásgeirsson með 32.924 atk eða 46,7% atkvæða.
- 1956 - Sjálfkjörinn
- 1960 - Sjálfkjörinn
- 1964 - Sjálfkjörinn
- Forsetakosningar á Íslandi 1968 - Nýr forseti kosinn Kristján Eldjárn með 67.544 atk eða 65,6% atkvæða.
- 1972 - Sjálfkjörinn
- 1976 - Sjálfkjörinn
- Forsetakosningar á Íslandi 1980 - Nýr forseti kosinn Vigdís Finnbogadóttir með 43.661 atk eða 33,8% atkvæða.
- 1984 - Sjálfkjörin
- Forsetakosningar á Íslandi 1988 - Vigdís Finnbogadóttir sitjandi forseti var endurkjörin með 117.292 atk eða 92,7% atkvæða.
- 1992 - Sjálfkjörin
- Forsetakosningar á Íslandi 1996 - Nýr forseti kosinn Ólafur Ragnar Grímsson með 68.370 atk eða 41,4% atkvæða.
- 2000 - Sjálfkjörinn
- Forsetakosningar á Íslandi 2004 - Ólafur Ragnar Grímsson sitjandi forseti var endurkjörinn með 90.662 atk eða 67,5% atkvæða.
- 2008 - Sjálfkjörinn
- Forsetakosningar á Íslandi 2012 - Ólafur Ragnar Grímsson sitjandi forseti var endurkjörinn með 80.036 atk eða 52,78% atkvæða.
- Forsetakosningar á Íslandi 2016 - Nýr forseti kosinn Guðni Th. Jóhannesson með 71.356 atk eða 39,1%
- Forsetakosningar á Íslandi 2020 - Guðni Th. Jóhannesson sitjandi forseti var endurkjörinn með 150.913 atk eða 92,2% atkvæða.
- Forsetakosningar á Íslandi 2024 - Nýr forseti]] - kosin Halla Tómasdóttir með 71.660 atk eða 34,3%