Kirkja hins fljúgandi spagettískrímslis
(Endurbeint frá FSM)
Kirkja hins fljúgandi spagettískrímslis (enska: Flying Spaghetti Monsterism; skammstöfun: FSM) eru gervitrúarbrögð sem ætluð eru sem háðsádeila á hugmyndir sköpunarsinna og vitshönnunarsinna um upphaf lífs og þróun þess. Trúin er aðallega runnin undan rifjum eðlisfræðingsins Bobby Henderson.
Áhangendur þessarar trúar kallast pastafarar (vísun í rastafara). Pastafarar trúa því að fljúgandi spagettískrímslið (enska: The Flying Spaghetti Monster), einnig kallað Hinn heilagi núðluleiki, hafi í upphafi skapað tré, fjöll og dverg. Fljúgandi spagettískrímslið lét einnig viljandi líta út fyrir að lífið á jörðinni hafi þróast, en það gerði það í raun ekki.
Tengt efni[breyta | breyta frumkóða]
Tengill[breyta | breyta frumkóða]
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Kirkju hins fljúgandi spagettískrímslis.