Fara í innihald

Bogmaður

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
(Endurbeint frá Boglið)
Bogmaður

Bogmenn eru sú tegund hermanna sem er vopnuð bogum eða lásbogum. Eftir að skotvopn með púðri urðu algeng hefur notkun bogmanna í hernaði horfið og verður því talað um þá hér í þátíð. Bogmenn voru vanalega fótgangandi og stillt upp í öruggri fjarlægt frá andstæðingunum, þaðan sem þeir gátu látið örvum rigna yfir þá áður en fótgöngulið lagði til atlögu. Mongólar, Tyrkir og nokkrar aðrar austrænar þjóðir notuðu aftur á móti bogliða á hestbaki, og á allt annan hátt en aðrir.

Þegar herklæði urði sterkari og betri, minnkuðu áhrifin af bogliðum, þar sem venjulegur bogi er sjaldan nógu sterkur til að drífa í gegn um góða brynju og lásbogar eru of tímafrekir í notkun til að geta komið í staðinn, þótt þeir séu miklu sterkari. Þetta breyttist með langboganum, sem Englendingar notuðu í Orrustunni við Agincourt með góðum árangri.

  Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.