Reykjanesbraut
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/0/0d/Iceland_Route_41.png/250px-Iceland_Route_41.png)
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/48/Reykjav%C3%ADk_aerial_2018.jpg/220px-Reykjav%C3%ADk_aerial_2018.jpg)
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/b/b5/Reykjanesbraut_%C3%AD_Hafnarfir%C3%B0i.jpg/220px-Reykjanesbraut_%C3%AD_Hafnarfir%C3%B0i.jpg)
Reykjanesbraut eða þjóðvegur 41 (áður kölluð Keflavíkurvegur en það heiti á nú við veg 424 sem liggur frá Reykjanesbrautinni gegnum Ytri-Njarðvík og Keflavík) er þjóðvegur sem liggur frá gatnamótum Miklubrautar, Sæbrautar og Vesturlandsvegar að Leifsstöð á Miðnesi. Vegurinn var fullgerður árið 1912 og lokið var við bundið slitlag árið 1965. Árið 2003 hófust framkvæmdir við tvöföldun vegarins (fjórar akreinar). Miklar tafir urðu á verkinu sem lauk ekki fyrr en í október 2008.[1]
Keflavíkurvegurinn steyptur[breyta | breyta frumkóða]
Í lok ársins 1960 hófust framkvæmdir við nýjan Suðurnesjaveg. Var ákveðið að hafa vegstæðið frá Hafnarfirði suður fyrir Hvassahraun með tilliti til hvar flugvöllur gæti hugsanlega komið í framtíðinni. Þá hefði Sementsverksmiðjan á Akranesi tekið til starfa og var ákveðið að hluti af veginum yrði steinsteyptur. Árið 1962 er unnið við steypu á veginum og eru steyptir 400 m á dag. Þann 26. október 1965 var vegurinn formlega opnaður. [2]
Tilvísanir[breyta | breyta frumkóða]
- ↑ DV (19. október 2008). „Tvöföld Reykjanesbraut komin í gagnið“. Sótt 10. apríl 2010.
- ↑ Grindavíkurvegir - saga og minjar, Ómar Smári Ármannsson fyrir Vegagerðina 2012
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/c/ce/Flag_of_Iceland.svg/40px-Flag_of_Iceland.svg.png)